Stutt gaman hjá Stólunum
Tindastólsmenn komu fjallbratt niður úr hæstu hæðum í kvöld eftir glæstan sigur í Lengjubikarnum um helgina. Það voru Þórsarar frá Þorlákshöfn sem skelltu Stólunum í jörðina því eftir frábæran fyrsta leikhluta heimamanna var nánast bara eitt lið á vellinum það sem eftir lifði leiks og var sigur Þórsara leiðinlega öruggur. Lokatölur 85-101 eftir að Stólarnir höfðu verið 2 stigum yfir í hléi.
Sem fyrr segir byrjuðu Stólarnir leikinn í sigurvímu og spiluðu af feykilegu öryggi. George Valentine var óstöðvandi og fór sínu fram í vítateig gestanna. Þegar leið á fjórðunginn fóru aðrir Stólar að dansa með honum og Lengjumeistararnir hreinlega stungu af, höfðu yfir 32-17 að leikhlutanum loknum. Það komu hins vegar allt önnur lið til leiks í öðrum leikhluta og heimamenn misstu strax dampinn, eftir aðeins fjórar mínútur var munurinn kominn í 4 stig, staðan 36-32. Gibson, sem var frekar dapur í kvöld, setti niður 3ja stiga körfu en gestirnir svöruðu með næstu þremur körfum og munurinn orðinn eitt stig. Stólarnir héngu á forystunni fram að hléi en þá var staðan 47-45.
Ekki hvarf doðinn úr mönnum eftir hlé og gestirnir náðu fljótt yfirhöndinni. Það var helst að Ingvi Rafn ógnaði körfu gestanna en aðrir voru alveg búnir að týna fjölinni sinni ef þeir á annað borð höfðu fundið hana. Sama hvað leikmenn gáfu í, það var eins og Tindastólsrútan spólaði á öllum. Ekki var það til að bæta úr skák að fjórir leikmenn gestanna voru hreinlega búnir að fá og finna zóninn og voru ekkert á þeim buxunum að gefa eftir eitt eða neitt. Benjamin Curtis Smith var magnaður í liði Þórs og í síðari hálfleik hrukku Flake og þó sérstaklega David Jackson hressilega í gírinn. Ekki bætti úr skák að Darri Hilmarsson skoraði jafnt og þétt þegar færi gáfust.
Þegar þriðji leikhluti var úti voru Þórsarar komnir með 12 stiga forskot og þegar 2 mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta var munurinn orðinn 18 stig, 66-84. Stólarnir reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn og koma sér inn í leikinn en það var eins og menn væru ekki í takti eftir sigurhelgina, sóknarleikurinn stirður, heppnin ekki með og dómgæslan var að pirra menn. Hreinsi Birgis setti niður þrist og minnkaði muninn í 10 stig, 80-90, en nær komust Stólarnir ekki og lokatölur 85-101.
George Valentine var flottur framan af leik en síðan þéttu Þórsarar vörnina og lokuðu á hraðbrautina sem hann hafði fundið að körfunni. Þröstur Leó átti ágæta spretti og gerði 15 stig og þá sýndu Helgi Rafn og Ingvi Rafn ágæt tilþrif.
Nú hafa Tindastólsmenn tapað sjö fyrstu leikjum sínum í Dominos-deildinni og orðið fullljóst að ætli Stólarnir að dvelja eitthvað lengur í efstu deild þá þurfa þeir að fara að komast á sigurbraut. Það eru auðvitað ekki alltaf jólin í körfunni en jólin eru í desember og því rétti tíminn til að detta í stuð. Áfram Tindastóll!
Stig Tindastóls: Valentine 23, Þröstur Leó 15, Gibson 13, Helgi Rafn 11, Ingvi Rafn 10, Hreinsi 8, Pétur Rúnar 3 og Svabbi 2.
Stig Þórs: Smith 31, Jackson 30, Darri 24, Flake 14 og Guðmundur 2.