Styrkur til rannsókna á ferðaþjónustu og hestamennsku á NLV
Nýverið var undirritaður samningur milli Vaxtarsamnings Norðurlands vestra og Ferðamálasamtaka NLV um styrk upp á 2,2 milljónir til rannsókna á tengslum ferðaþjónustu og hestamennsku og efnahagslegu framlagi hestamennsku á NLV.
Verkefnisstjóri er Ingibjörg Sigurðardóttir lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Verkefnið tengist rannsóknum hennar á hestamennsku sem atvinnugrein. Að verkefninu standa auk Ferðamálasamtakanna, Háskólinn á Hólum, Félag hrossabænda og Runólfur Smári Steinþórsson prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hólar.is segir frá þessu.