Sumarbúðir RIFF fara fram í Skagafirði í maí
Sumarbúðir RIFF, námskeið í handritagerð fyrir lengra komna, fara fram í Skagafirði dagana 21.-25. maí nk. Meðal leiðbeinenda verða Baltasar Kormákur á Hofi og Peter Wintonick, heimildamyndaframleiðandi frá Kanada. Á heimasíðu RIFF (Reykjavík International Film Festival) segir að sumarbúðirnar séu framlenging á kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar (RIFF Talent Lab) sem hefur farið fram við góðan orðstír samhliða kvikmyndahátíðinni allt frá árinu 2006.
Sumarbúðirnar eru hugsaðar sem vettvangur þar sem ungt afreksfólk á sviði kvikmynda getur bætt færni sína í handritaskrifum. Fyrirlestrar, umræður og lifandi „pitch“ fundir þar sem þátttakendur fá viðbrögð við hugmyndum sínum og uppköstum yrðu allt hluti af námskeiðinu. Leiðbeinendur vinna í návígi við smáa hópa nemenda að þróun handrita, auk þess sem þátttakendur fá ríkulegan tíma í einrúmi með leiðbeinendum.
Ætlunin er að nemendur fari heim með ríkari og dýpri skilning á sjónrænum frásagnarmáta sem nýtist jafnt við gerð leikinna, teikni- og heimildarmynda. Þeim sem starfa við nýmiðlun og leikjahönnun býðst einnig að taka þátt.
Sjá nánar á RIFF.is