Sumarbúðir RIFF í Skagafirði

Sumarbúðir RIFF (Reykjavík International Film Festival), námskeið í handritagerð fyrir lengra komna, standa yfir í Skagafirði dagana 21. – 25. maí. Sumarbúðirnar eru framlenging á kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar (RIFF Talent Lab) sem hefur farið fram við góðan orðstír samhliða kvikmyndahátíðinni, allt frá árinu 2006.

Tuttugu og fjórir nemendur sækja námskeiðið, þar af tíu erlendir. Nemendurnir koma frá öllum heimsálfum  að Asíu undanskilinni. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Peter Wintonick, heimildamyndaframleiðandi frá Kanada, Lárus Ýmir Óskarsson og Simon Burke. Allir eru þeir virtir handritahöfundar. Í hópnum eru einnig  tveir sem halda utan um búðirnar og einn kvikmyndatökumaður.

„Þetta er búið að ganga mjög vel. Þetta eru allt krakkar með menntun og reynslu af handritagerð. Nemendur mættu á námskeiðið með hugmyndir að handriti og sumir komu með tilbúin handrit. Krakkarnir byrjuðu á því að kynnast og segja frá hugmyndum sínum“, segir Árni.

RIFF heldur nú námskeið í fyrsta skipti í samráði við Skagfirsku kvikmyndaakademíuna, en hana skipa Lilja Pálmadóttir, Baltasar Kormákur og Árni Gunnarsson. Baltasar Kormákur átti hugmyndina að sumarbúðunum en er fjarverandi vegna vinnu erlendis. Hann lét það þó ekki á sig fá og hélt fyrirlestra og svaraði spurningum í gegnum Skype.

Síðasti dagur sumarbúðanna er í dag og mun þeim ljúka með flottu lokahófi í Grettislaug.

Fleiri fréttir