Sumarhátíð á Hvammstanga

MYND HUNATHING.IS
MYND HUNATHING.IS
Haldið verður upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt þann 24. apríl nk. á Hvammstanga. Hátíðin hefst með skrúðgöngu frá Félagsheimilinu á Hvammstanga klukkan 13:00. Farinn verður hefðbundinn hringur með viðkomu á Sjúkrahúsinu.
 
Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng.
 
Öllum er boðið upp á vöfflur og kakó. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar verða í boði. Foreldrafélag Leikskólans Ásgarðs eru umsjónaraðilar hátíðarinnar í ár. Öll dagskráin er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir