Sundgarpar sameinist
Áskorun hefur verið gefin út til fyrirtækja í Skagafirði og deilda innan Tindastóls um að taka þátt í boðsundi á Héraðsmóti UMSS á 17. júní og sundfólk hvatt til að dusta rykið af gömlum sundtökum sem hljóta að leynast hjá því.
Þarna er komið kjörið tækifæri til að efla starfsandann, bæta heilsuna um leið að efla samvinnu, setja sér sameiginleg markmið, sjá hæfileika samstarfsfélaga í nýju ljósi og upplifa skemmtilega stund saman, segir í áskoruninni.
Á mótinu í fyrra var stjórn sunddeildar hvött til að setja saman boðsundsveit og skorar hún nú á aðrar deildir Tindastóls eða fyrirtæki í Skagafirði til að setja saman boðsundsveit eða sveitir til að keppa á Héraðsmótinu UMSS 17. júní 2013. Síðasti skráningardagur er til miðnættis 4. júní á sund@tindastoll.is