Sundlaugar loka - Breyttar reglur um aldurstakmark
Sundlaug Sauðárkróks verður lokuð 31. maí vegna endurmenntunar starfsmanna. Þá verður Sundlaugin á Hofsósi lokuð frá klukkan 08:00-16:30 af sömu ástæðu þann 1. júní en opnar aftur klukkan 16:30 og verður opin til klukkan 21:00.
Aldurstakmark í sundlaugar landsins hefur verið afmælisdagur 10 ára barna en þann 1. júní breytast reglurnar þannig að öll börn sem ná 10 ára aldri á árinu verður heimilt að fara ein í sund. Gott er þó að ítreka að fara að öllu með gát.