Sundmót UMSS á þjóðhátíðardaginn

Sundmót UMSS verður haldið í Sundlaug Sauðárkróks á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Opið verður fyrir almenning í sundlauginni eftir að mótinu lýkur, til kl. 17.

„Allir hvattir til að mæta , hvetja og fylgjast með  ungu og efnilegu sundfólki okkar. Nóg sæti laus í stúkunni,“ segir á heimasíðu Svf. Skagafjarðar. Mótið hefst klukkan 10 og stendur til kl. 12.

Þá er minnt á afgreiðslutíma sundlauga í Skagafirði:

  • Á Hofsósi er opið alla daga frá kl. 9-21, í Varmahlíð er opnað alla daga kl. 10.30 og opið til kl. 21.00 virka daga og til klukkan 18.00 um helgar. Sundlaug Sauðárkróks opnar virka daga klukkan 6.50 og er opin til klukkan 21.00 . Um helgar er opið þar frá klukkan 10-17.
  • Aðrar laugar eru á Sólgörðum í Fljótum, sími: 4671033/8410322, Sundlaugin Steinsstöðum sími: 4538812 sem er opin alla daga frá kl. 9-21 og  Sundlaugin Hólum sími 4556333 sem er opin virka daga frá kl. 15-20 og um helgar frá kl. 10-18.

 

Fleiri fréttir