Sundriðið í Sauðárkrókshöfn - uppfært

Atriði í kvikmyndinni Hross var tekið upp í Sauðárkrókshöfn 18. september en þar sundríður maður út í rússneskan togara til að ná sér brennivín. Sundið út í togarann gekk vel hjá hesti og manni en þegar átti að snúa við fór ekki alveg eins og ritað var í handritið.

Klakkurinn dubbaður upp í rússneskan búning.

Hesturinn féll af sérsmíðuðum palli sem hékk utan á skipinu og knapinn skutlaði sér á eftir honum en saman fóru þeir í land heilir og höldnu en hrakblautir og kaldir.

Myndband sem sýndi sundferðina og var aðgengilegt hér á Feyki hefur verið tekið út að beiðni aðstandenda myndarinnar þar sem það þótti geta skemmt fyrir velgengni hennar í framtíðinni. Að vel athuguðu máli hjá ritstjórn Feykis var farið að kröfum aðstandenda myndarinnar sem sóttu það stíft að myndbandið yrði fjarlægt.

Á leið í sundið. Hestur og knapi greinilega vanir sundgarpar.

Það skal tekið fram að það er ekki mat Feykis að um illa meðferð á hrossinu hafi verið að ræða og myndbandið ekki sett fram í þeim tilgangi, heldur til að upplýsa fólk hvað var um að vera í höfninni á Sauðárkróki, hvernig til tókst við sundið svo ekki sé talað um skemmtanagildið.

Sundgarpar komnir á pallinn og bíða þess að snúa í land.

Knapinn skutlar sér á eftir hestinum og saman komast þeir í land og enginn harmur skeður.

 

Fleiri fréttir