Sundsprettsmót í Sauðárkrókslaug
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
20.09.2012
kl. 10.01
Sunddeild Tindastóls verður með sprettsundmót í Sundlaug Sauðárkróks í dag, fimmtudaginn 20. september, kl. 17:30. Í nýjasta eintaki Sjónhornsins eru allir sem hafa áhuga á sundíþróttinni hvattir til að koma og horfa á og sjá efnilega sundmenn keppa.
Keppt verður í 25 m greinum. Keppendur og tímatökufólk verður boðið í pizzaveislu að loknu móti.