Sundþjálfara vantar til starfa
Sundþjálfari óskast til starfa hjá Sunddeild Tindastóls á Sauðárkróki. Þjálfarinn ber ábyrgð á allri sundþjálfun deildarinnar og stýrir henni í samráði við stjórn sunddeildarinnar.
„Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki seinna en í ágúst þegar skólarnir byrja,“ segir í tilkynningu frá sunddeildinni. Lágmarksaldur 20 er ára.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun og reynsla á sviði íþrótta- og/eða sundþjálfunar
- Reynsla og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Hafa gaman að vinna með börnum og unglingum
Umsóknir berast á netfang: sund@tindastoll.is til 4.ágúst eða að hafa samband við Þorgerði Þórhallsdóttir formann sunddeildar Tindastóls í s: 8561812 til að fá nánari upplýsingar.