„Sunnan við garðinn hennar mömmu“

Menningardagar sem kallast Listaflóð á Vígaslóð 2012 verða haldnir á Syðstu-Grund í Blönduhlíð dagana 13. - 14. júlí en slík menningarhátíð var haldin á Grund fyrir ári síðan og verður þráðurinn tekinn upp að nýju um næstu helgi.

Tónleikar verða haldnir „Sunnan við garðinn“ á föstudagskvöldinu, 13. júlí kl. 20:30. Þar mun Tindatríóið koma fram en söngtríóið skipa feðgar af Kjalarnesinu, þeir Atli Guðlaugsson og synir hans Bjarni og Guðlaugur. Þeir hafa vakið athygli fyrir góðan söng og líflega framkomu og eru flestar útsetningar úr smiðju Atla. Karlakórinn Brandur Kolbeinsson mun stíga á stokk en kórinn hefur verið sérstaklega settur saman fyrir þetta tilefni og fleira óvænt mun jafnvel líta dagsins ljós. Það stefnir því í fjörugt föstudagskvöld.

Réttur verður settur kl. 12 á laugardaginn og mun dagskráin verða opin fram eftir degi. Lítill garðmarkaður þar sem handverksfólk og annað listafólk sýnir og kynnir varning sinn og hægt er að gera góð kaup ef fólk vill.

Félagar úr Víkingafélaginu Hringhorna á Akranesi mæta til leiks og slá upp búðum á föstudagskvöld. Á laugardeginum munu þeir sýna leiki fornmanna og bjóða gestum í leik, börnum sem fullorðnum. Einnig verður Sigurður Hansen með leiðsögn um Haugsnesgrundir.

Fjölbreytt tónlistaratriði verða yfir daginn og koma fram m.a. Sæþór Már, Gillon, Johnson&Johnson, Jón Þorsteinn Reynisson harmonikusnillingur og Árni Geir Sigurbjörnsson tenór. Lilla á Grund er búinn að baka mikið góðgæti og það verður því enginn með tóman maga. Kaffiveitingar Lillu eru á kr. 1000 (ath. ekki er posi á staðnum).

Enginn aðgangseyrir er inn á tónleikana og á hátíðina en frjáls framlög eru vel þegin til að styrkja þessa menningardaga. Hægt er að fylgjast með undirbúningi og uppfærðri dagskrá á facebook.

Verið velkomin í Syðstu-Grund.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir