Súpufundur um vetrarferðaþjónustu í hádeginu
Atvinnu- og ferðamálanefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði standa fyrir súpufundi um vetrarferðaþjónustu á Kaffi Króki í hádeginu í dag en fundurinn hefst kl. 12:00. Súpa og brauð er í boði fundarboðenda og eru áhugasamir hvattir til að fjölmenna og eiga góða umræðu um framtíð vetrarferðaþjónustunnar.
Erindi halda Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli og Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.