Svaðaleg í Svartri Mjólk!!
Fröken Fabjúlöss er opin fyrir öllu þegar kemur að tísku en sérstakt blæti hefur hún þó fyrir töffaraskap og almennu pönkaralúkki!
Það er alltaf gaman að vera kvenleg og elegant, en það er ekkert verra að hrista svolítið upp í hlutunum með því að láta glitta í eina hauskúpu hér eða leðurarmband þar þegar verið er að smella lúkki dagsins saman.
Á einum netrúntinum datt Fröken Fabjúlöss inn á síðu sem nánast breytti lífi hennar... Black Milk Clothing eru aðallega í því að hanna leggings (þó að megi finna þar sundboli, kjóla og jafnvel skó) og síðan Fröken Fabjúlöss datt niður á þessa dásemd hafa margir klukkutímarnir farið í það að fletta í gegnum, skoða, girnast, dreyma um og þrá leggings frá þessum hönnuði!
Það skemmtilega við Black Milk er að allt sem kemur að fyrirtækinu er svo persónulegt eitthvað, allt frá email samskiptum í uppfærslur á feisbúkk hjá þeim. Hálfgert "költ" hefur myndast um þau og kalla þau stelpurnar sínar, stelpurnar sem klæðast fötunum þeirra, "Sharkies" og það er gaman að fylgjast með því að feisbúkk hvað þau eru dugleg við að pósta inn myndum af hinni almennu "Sharkie" í fötum frá þeim!
Fröken Fabjúlöss lætur sig dreyma um að hafa einhverntímann ástæðu til að senda þeim mynd!!