Svartþrestir með vetursetu í Varmahlíð
Tveir svartþrestir hafa átt vetursetu að Skógarstíg í Varmahlíð en svartþrestir er sjaldséðir gestir hér á slóðum. „Það eru miklar bollaleggingar hjá heimilisfólkinu hvort þeir verpi hjá okkur í vor,“ segir Kári Gunnarsson sem sendi Feyki mynd af öðrum svartþrastanna.
Samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands er svartþröstur (Turdus merula, e. blackbird) afar algengur víða í Evrópu en nýlegur landnemi á Íslandi. Hér á landi verpir hann meðal annars á innnesjum svo sem í Reykjavík og er talið að varpstofn hans á höfuðborgarsvæðinu sé á bilinu 60 til 100 pör.
„Svartþröstur er litlu stærri en skógarþröstur (Turdus illiacus), sú þrastategund sem landsmenn þekkja best. Karlfuglinn er alsvartur með gul-appelsínugulan gogg og áberandi gulan hring í kringum augun en kvenfuglinn er brúnmóleitur með fölgulan gogg. Ungfuglar eru líkir kvenfuglum í útliti. Svartþrestir eru á bilinu 23 – 29 cm á lengd og vega um 125 grömm,“ segir á Vísindavefnum.