Svartur á leik í Króksbíói

Íslenska stórmyndin Svartur á leik hefur fengið góðar viðtökur hjá landsmönnum en samkvæmt heimildum mbl.is hafa um 50 þúsund manns séð myndina og hefur nú  halað inn 63 milljónir króna í tekjur.

Myndin er því orðin fjórða tekjuhæsta íslenska myndin frá upphafi. Af því tilefni af því og vegna fjölda áskorana mun myndin fara í sýningu um allt land á næstu dögum, þar á meðal verður hún til sýningar á Sauðárkróki.

Myndin verður til sýningar í Króksbíói mánudaginn 2. apríl og fimmtudaginn 5. apríl kl. 20. Miðapantanir fara fram í síma 4535216 og miðaverð er 1500 kr. Þess má geta að myndin er bönnuð innan 16 ára.

 

Fleiri fréttir