Svavar Knútur gefur út nýja plötu
Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur gaf nýverið út plötuna Ölduslóð en viðfangsefni albúmsins segir Svavar Knútur án efa kunnuglegt þeim sem búa austan vatna.
Ölduslóð er þriðja plata Svavars Knúts, önnur platan hans hét Amma og sú fyrsta Kvöldvaka, sem hann segir vera dálítið Skagfirska. „Tvö lög á henni fjalla beint um Sléttuhlíðina og þá náttúrufegurð sem þar ríkir,“ segir hann.
Hér er má skoða síðuna hans Svavars Knúts en þar er einnig hægt að hlusta á lög af plötunum þremur.