Sveitasæla 2012 í Skagafirði

Sveitasæla 2012 verður haldin í reiðhöllinni Svaðastaðir laugardaginn 25. ágúst næstkomandi en á dögunum var gengið til samninga við viðburðastjórnunarfyrirtækið Markvert ehf. á Sauðárkróki um umsjón og framkvæmd sýningarinnar í samvinnu við Flugu hf, Sveitarfélagið Skagafjörð og búgreinafélög í héraðinu.

Sveitasæla er uppskeruhátíð bænda í Skagafirði en hefð er fyrir því að þeir hittist einn laugardag í ágúst og geri sér glaðan dag auk þess sem vélasalar hafa kynnt nýjungar í sölu landbúnaðartækja. Þá verða á sýningunni handverksbásar auk þess sem fyrirtæki tengd landbúnaði munu kynna starfsemi sína. Dýragarðurinn verður á sínum stað og eins kvöldvakan sem sló eftirminnilega í gegn í fyrra.

Þessa dagana er undirbúningur hátíðarinnar að nálgast hámark og styttist í að dagskrá hennar verði kunngerð.  Gísli Einarsson sjónvarpsmaður mun stýra kvöldvökunni og áformað er að Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra ávarpi gesti hennar.

Þeim sem vilja taka þátt í hátíðinni er bent á að hafa samband Markvert ehf á netfanginu sveitasaela@markvert.is. Nánari upplýsingar um hátíðina má sjá á vefsvæði reiðhallarinnar www.svadastadir.is.

Fleiri fréttir