Sveitasælan undirbúin

Sveitasæla 2012 verður haldin í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki um helgina og að venju verður margt í boði. Sveitasæla er landbúnaðarsýningin og bændahátíð þar sem kynnast má helstu húsdýrum landsins sem og nýjustu „græjunum“ í landbúnaðinum. Þegar blaðamaður Feykis leit inn í reiðhöllina fyrr í dag var vaskur hópur fólks að undirbúa sýningarsvæðið enda búist við fjölda sýnenda og gesta.

Sýningin hefst laugardaginn 25. ágúst og er opin frá 10:00–19:00 og er aðgangur ókeypis. Á sunnudeginum verða opin bú í Skagafirði milli klukkan kl. 11 og 16 en þau eru Hrossaræktarbúið Hof á Höfðaströnd, Loðdýrabúið Urðarköttur á Syðra- Skörðugili, Kúabúið Hlíðarenda í Óslandshlíð og Sauðfjárbúið Brúnastaðir í Fljótum.

Sjá nánar um dagskrána HÉR

Fleiri fréttir