Sveitastjórnarstigið er hugsað til þess að þjóna nærsamfélaginu
Ólafur Bjarni Haraldsson er að eigin sögn bóndasonur af Langholtinu sem álpaðist á sjó. Ólafur
er sonur Hadda og Ragnheiðar í Brautarholti, lærður smiður og stýrimaður og starfar sem
sjómaður á Málmey SK1 og sveitastjórnarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir Byggðalistann. Í
dag er Ólafur búsettur á Hofsósi með sambýliskonu sinni Wioletu Zelek.
Feykir hafði samband við Ólaf og spurði hann hvernig það færi saman að vera sjómaður og
sveitastjórnarfulltrúi.
„Það fer nú bara frekar vel saman. Ég renndi blint í sjóinn með það þegar ég sóttist eftir að leiða
Byggðalistann í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Ég vissi að byggðarráðsfundir væru vikulega og
sveitarstjórnarfundir mánaðarlega, og því alveg ljóst að ég gæti sjálfsagt aldrei náð öllum fundum sökum
fjarveru. En það lá líka fyrir að maður kæmi í manns stað, og í rauninni ekki aðalatriðið hver það er sem
kemur okkar sjónarmiðum á framfæri á fundum. Samstarfsfólk mitt í sveitarstjórn og byggðarráði hefur
svo verið liðlegt við að skipuleggja fundi þannig það henti sem flestum, en meðal annars voru reglulegir
fundir byggðarráðs færðir á miðvikudaga sem er yfirleitt löndunardagur hjá Málmey, þannig sjómenn geta
vel tekið þátt í sveitarstjórnarstörfum.“ Segir Ólafur.
Ólafur er nokkuð sáttur með það hvernig kjörtímabilið hefur gengið hingað til, en hann og Byggðalistinn
hafa lagt mikla áherslu á húsnæðismál leik- og grunnskóla sveitarfélagsins.
“Ég er nokkuð sáttur með það hvernig til hefur tekist enn sem komið er. Upphaf kjörtímabilsins var aðeins
strembið, það voru umdeild mál í gangi sem við hefðum vilja afgreiða öðruvísi og höfðum kannski ekki
erindi sem erfiði við afgreiðslur þeirra. En við höfum reynt að nálgast hlutina málefnalega, og almennt
hefur okkur tekist vel til við að hafa áhrif á hin ýmsu mál. Það má því segja að markmiðin náist því eitt af
öðru, þó vissulega séu einhver eftir. Við settum sem dæmi mikinn fókus á húsnæðismál leik- og
grunnskóla sveitarfélagsins og þar vil ég meina að hlutirnir séu að þokast í rétta átt þó það geri það ekki
með neinum látum.“
Þegar blaðamaður Feykis spurði Ólaf hver áform hans og Byggðalistans væru fyrir
sveitarstjórnakosningarnar næsta vor sagði Ólafur:
„Þó það sé kannski ótímabært að ræða það mikið núna, þá finnst mér ansi líklegt að Byggðalistinn muni
bjóða fram öflugan lista fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Ég sjálfur mun örugglega taka þátt í því á
einhvern hátt. Þegar Byggðalistinn var að fæðast fyrir síðustu kosningar, þá lögðum við upp með að
reyna að fá fólk á lista frá sem flestum svæðum sveitarfélagsins og úr sem ólíkustu hópum.
Sveitarstjórnarstigið er jú hugsað til þess að þjóna nærsamfélaginu, og því afar mikilvægt að hafa
tengingu við allt nærsamfélagið. Þar held ég að okkur hafi tekist nokkuð vel til, þó alltaf megi gera betur.
Okkur langar að stækka hópinn og fá enn betri tengingu við sem fjölbreyttustu hópa samfélagsins. Ætli
sumarið verði ekki notað til að kortleggja hvar við þurfum að bæta okkur, og reyna svo að fá með okkur í
lið fleira öflugt fólk til að móta stefnur og setja okkur ný markmið.“ Segir Ólafur að lokum.
Greinin birtist í 22. tölublaði Feykis
/SMH