Svf. Skagafjörður stofnfélagi í Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga

Á fundi Byggðarráðs Skagafjarðar þann 4. október sl. var samþykkt að sveitarfélagið Skagafjörður gerist stofnaðili í Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga en markmið samtakana er að skapa öflugan sameiginlegan vettvang til sóknar og varnar fyrir sjávarútvegssamfélögin.

Á fundinum var lögð fram ályktun frá fundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 26. september sl. en í henni segir m.a. að sjávarútvegurinn hefur verið og er enn ein mikilvægasta efnahagsstoð þjóðarbúsins. Því fólki sem hefur beina atvinnu af veiðum og vinnslu hefur fækkað alla síðustu öld en þekking, tækniframfarir og krafa um aukna hagræðingu og framlegð hafa afgerandi áhrif á fjölda starfa í veiðum og vinnslu.

Mikilvægt er að við breytingar á lögum og reglum er varða sjávarútveginn sé horft til þess að treysta starfsumhverfi þess fólks sem starfar í greininni. Með stofnun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga er horft til þess að skapa öflugan sameiginlegan vettvang til sóknar og varnar fyrir sjávarútvegssamfélögin.

Í fundargerð 605. fundar Byggðarráðs má lesa innihald bréfsins í heild sinni.

 

Fleiri fréttir