Sylvía Sif sigrar í Vísubotni
Sylvía Sif Halldórsdóttir, nemandi í 8. bekk í Varmahlíðarskóla, hlaut fyrstu verðlaun á unglingastigi í vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2012, sem Námsgagnastofnun efndi til í tilefni af Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl.
Vísan er hér að neðan og er botn Sylvíu Sifjar feitletraður.
Vígalegan vin ég á,
vísan lýsir honum.
Stór er hann og sterkur sá
og stendur undir vonum.
Feykir óskar Sylvíu Sif til hamingju með sigurinn.