Sýningar á Ronju Ræningjadóttur hefjast í dag - uppfært
Í dag fer fram frumsýning á leikriti 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki en flutt verður hin sígilda saga um Ronju Ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren, Annina Paasonen annaðist leikgerð. Sýningarnar verða þrjár og munu þær fara fram í Bifröst.
Miðapantanir fara fram á milli kl. 14-20 í síma 453 5216 en miðaverð fyrir 5 ára og yngri er 500 kr., grunnskólanemendur 1000 kr. og fullorðnir 1500 kr. Ekki er tekið við greiðslukortum. Leiksýningarnar verða sem hér segir:
- Þriðjudagur 20. mars kl. 17 og kl. 20.
- Miðvikudagur 21. mars kl. 17 og kl. 20
- Fimmtudagur 22. mars kl. 17 og kl. 20
Um Ronju Ræningjadóttur:
Sagan af Ronju Ræningjadóttur gerist í Matthíasarskógi þar sem ræningjaforinginn Matthías faðir Ronju ræður ríkjum. Ægileg elding klífur Matthíasarkastalann í tvennt nóttina sem Ronja fæðist og Helvítisgjáin verður til. Ronja er augasteinn og eftirlæti foreldra sinna og ræningjaflokksins. Þegar hún vex úr grasi áttar hún sig á því að faðir hennar sem hún elskar mest af öllum er ekki óskeikull. Ógn steðjar að ríki Mattíasar þegar Borki erkifjandi hans flytur inn í kastalarústirnar hinu megin við Helvítisgjána ásamt ræningjaflokknum sínum.
Það verður til þess að Ronja hittir Birki son Borka og með þeim tekst djúp vinátta í óþökk foreldra þeirra. Matthías afneitar dóttur sinni og Birkir og Ronja flýja út í Matthíasarskóg. Skógurinn er fullur af ævintýrum, rassaálfum og öðrum furðuverum en líka hættum sem Ronja og Birkir verða að vinna bug á. Sagan af Ronju Ræningjadóttur er saga um vináttu og hugrekki en þó fyrst og fremst kærleika.
Heimild: Sjónhornið og griman.is.
Hér eru nokkrar myndir sem bárust Feyki, teknar á æfingum 10. bekkinganna á Ronju Ræningjardóttur.