Sýningarplan rangt í Sæluvikudagskrá – uppselt á 3. sýningu

Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir næstkomandi sunnudag leikritið Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýðingu Árna Ibsen og í leikstjórn Ingrid Jónsdóttur. Frumsýning hefst kl. 20.30 og minnt er á að miðasala er í anddyrinu í Bifröst frá kl. 16-18 virka daga og 30 mínútum fyrir sýningar. Miðasölusími er 849 9434.

Starfsmannafélag Skagafjarðar, Starfsmannafélag KS og Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar bjóða félagsmönnum sínum á sýninguna.

Sýningarplan misritaðist í Sæluvikudagskrá en er rétt á bakhlið Sjónhornsins og hér að neðan og má einnig sjá það á heimasíðu félagsins: http://www.skagafjordur.net/ls/

  • Frumsýning sunnudaginn 29. apríl kl. 20:30
  • 2. sýning þriðjudaginn 1. maí kl. 20:30
  • 3. sýning fimmtudaginn 3. maí  kl. 20:30 uppselt
  • 4. sýning sunnudaginn 6. maí kl. 20:30
  • 5. sýning fimmtudaginn 10. maí kl. 20:30
  • 6. sýning miðnætursýning föstudaginn 11. maí kl. 23:00
  • 7. sýning laugardaginn 12. maí kl. 17:00
  • Lokasýning sunnudaginn 13. maí kl. 20:30

Fleiri fréttir