Tap í fyrsta leik í 1. deildinni
Tindastóll spilaði fyrsta leik sinn í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í Hafnarfirði í gær. Það voru Haukar sem voru mótherjinn að þessu sinni og er skemmst frá því að segja að heimamenn höfðu betur, sigruðu með tveimur mörkum gegn engu, en lið Tindastóls átti ágæta spretti í leiknum.
Lið Hauka byrjaði betur í leiknum og fengu ágætt færi strax á upphafsmínútunum en Arnar Magnús náði að verja. Tindastólsmenn komust inní leikinn og samkvæmt frásögn á Tindastóll.is þá voru Stólarnir komnir með öll völd á vellinum eftir um stundarfjórðung. Sérstaklega gekk Haukum illa að ráða við Theo Furness en hann lagði upp úrvalsfæri fyrir félaga sinn Ben Everson en honum brást bogalistinn og markvörður Hauka varði skot hans. Stólarnir fengu síðan á sig grátlegt mark á 39. mínútu þegar Hilmar Trausti Arnarsson skoraði beint úr hornspyrnu. Staðan 1-0 í hálfleik.
Í upphafi síðari hálfleiks voru Stólarnir næstum búnir að jafna en þá átti Fannar Freyr Gíslason skot í samskeytin eftir óbeina aukaspyrnu. Eftir þetta róaðist leikurinn og fátt markvert gerðist fyrr en á 80. Mínútu þegar Arnari markmanni Tindastóls var vísað af velli eftir að hafa sýnt áhorfendum fingurinn að því heimildir herma. Á þeim tímapunkti voru Stólarnir búnir að nota allar sínar skiptingar og fór því Fannar Örn Kolbeinsson í markið en Fannari er margt til lista lagt á knattspyrnuvellinum. Hann varð þó að hirða boltann einu sinni úr markinu því Magnús Páll Gunnarsson bætti við laglegu marki í blálokin en hann hafði skömmu áður sett boltann í þverslána.
Í samtali sem Fótbolti.net átti við Donna þjálfara að leik loknum kemur fram að hann hafi verið sáttur við vinnuframlag Tindastólsmanna og sem þjálfari gæti hann ekki beðið um mikið meira en að menn leggi sig alla fram. Honum fannst grautfúlt að liðið fengi á sig mark beint úr hornspyrnu.
Tveir menn koma til liðs við Stólana í vikunni og styrkja væntanlega hópinn og þá má geta þess að besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili, Arnar Sigurðsson, vermdi bekkinn í gær en hann er að ná sér af meiðslum. Viðtalið við Donna má sjá á Fótbolti.net eða með því að smella á linkinn hér að neðan.