Tap í fyrsta leik lengjubikarsins hjá stelpunum
Fyrsti leikur lengjubikarsins hjá Meistaraflokki kvenna í Tindastól fór fram í Boganum í gærkvöldi er stelpurnar mættu liði Hattar frá Egilsstöðum. Þrátt fyrir að leikurinn hafi tapast 5-0 var margt jákvætt í leik liðsins sem hægt er að draga fram og gefa úrslitin ekki rétta mynd af stöðu liðsins fyrir komandi átök.
Nokkrar breytingar hafa verið á liðinu frá fyrra tímabili og má þar nefna að Rakel Hinriksdóttir Más Jónssonar á Syðstu-Grund kemur frá KA/Þór og þá er ljóst að Tóta mun ekki verja markið í sumar þar sem erfingi er á leiðinni hjá henni, samkvæmt heimasíðu Tindastóls.
Næsti leikur liðsins er eftir rúman mánuð, eða 21. apríl, en í millitíðinni munu stelpurnar fara í utanlandsferð og þar verður góður möguleiki á að slípa liðið betur saman fyrir átök sumarsins.