Tapað - fundið

Inn á afgreiðslu Nýprents kom maður með bíllykil sem hann hafði fundið í Raftahlíðinni á Sauðárkróki. Á lyklinum er Toyotamerki auk annars merkis á lyklakippunni sjálfri sem eigandi getur veitt upplýsingar um til að sanna eignarhald sitt.

Sá sem telur sig eiga umræddan lykil getur nálgast hann í afgreiðslu Nýprents.

Uppfært klukkan 17:03: Eigandinn er fundinn og allir hamingjusamir.

Fleiri fréttir