Teflt í heita pottinum

Skákáhugafólk á öllum aldri í Húnavatnssýslu og Skagafirði hefur notið góðrar heimsóknar þeirra Stefáns Bergssonar, framkvæmdastjóri Skákakademíunnar og Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands en þeir hafa farið í skóla á svæðinu og kynnt skákíþróttina. Þá hafa þeir gefið skákborð bæði hefðbundin og þau sem ætluð eru sundlaugargestum.

Feykir kíkti í Sundlaug Sauðárkróks í gær þar sem eitt sundsettið var afhent og voru þá að tefla þeir Hákon Ingi Rafnsson kjördæmismeistari og Sigurður Jónsson kennari. Eftir harða baráttu sigraði sá stutti en hann er einmitt á leiðinni á skáklandsmót á Patreksfirði í byrjun maí.

Um kvöldið hófst svo Skákþing Norðlendinga í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Í upphafi mótsins var Haraldur Hermannsson heiðraður en hann verður 90 ára 22. apríl nk.

Það voru þeir Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi og Ólafur Sigfús Benediktsson íþróttakennari sem vígðu nýja sundskáksettið í heita pottinum á Blönduósi í gær. Mynd: Skáksambandið

Fleiri fréttir