Tekið miklum framförum í sumar
Jóhann Björn Sigurbjörnsson, spretthlaupari úr Tindastól/UMSS mun keppa með sameiginlegu liði Íslendinga og Dana á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í frjálsíþróttum fer fram í Vaxjö í Svíþjóð helgina 18. - 19. ágúst nk.
Samkvæmt heimasíðu UMSS hafa Íslendingar og Danir áður sent sameiginlegt lið til mótsins en að þessu sinni eru 16 Íslendingar í liðinu og voru þeir valdir á grundvelli strangra lágmarka sem sett voru.
Jóhann Björn mun hlaupa 100m og verður einnig í boðhlaupssveitum í 4x100m og 4x400m boðhlaupum. „Jóhann Björn hefur tekið miklum framförum í sumar og um síðustu helgi hljóp hann 100m á 11,05sek, og er kominn í allra fremstu röð spretthlaupara hér á landi,“ segir á heimasíðunni.