„Það er engan veginn hægt að sleppa þessu kvöldi!“
Menningarkvöld Nemós, nemendafélags Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fer fram á morgun, föstudaginn 26. október nk. Dagskrá Menningarkvöldsins verður ekki af verri endanum en kynnar kvöldsins verða þeir Arnar Freyr og Helgi Sæmundur úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur.
Funk That Shit!, sem hafnaði í þriðja sæti á Músíktilraunum 2012, og Rock to the Moon ætla líka að taka lagið á Menningarkvöldinu en sú síðarnefnda er skipuð þremur skagfirskum grunnskólastrákum. Svo munu nemendur úr skólunum þremur; FNV, MÍ og ME flytja tónlistaratriði. Beggi blindi sér um að kitla hláturtaugarnar með uppistandi.
Ísak Atli og Sigvaldi í Feykisviðtali.
„Dragið“ og „Body Paintið“ þykir vera ómissandi þáttur af Menningarkvöldinu. „Það er engan veginn hægt að sleppa þessu kvöldi!“ segja þeir Ísak Atli og Sigvaldi og beinir þeim tilmælum til allra Skagfirðinga. Ísak Atli Finnbogason, formaður nemendafélagsins og Sigvaldi Helgi Gunnarsson, skemmtanastjóri segja nánar frá fjörinu framundan í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis, sem þeir segja að verði stærsti viðburður skólans frá upphafi.
Menningarkvöldið hefst kl. 20:30 en húsið opnar kl. 19:30, fyrir þá sem vilja tryggja sér sæti á fremsta bekk. Verð er 2000 kr. en 1500 kr. fyrir félaga NFNV og 12 ára og yngri. Strákarnir vilja koma því á framfæri að engin áfengisneysla verður leyfð í húsinu. Hægt verður að kaupa gos og fleira í sjoppu sem Ferðastúdentar verða með á staðnum.
Á ljósmyndavef Feykis má rifja upp stemninguna frá því í fyrra.