Það er nefnilega hola á Rúntinum
Það kannast allir við að holur geta verið ansi hreint hvimleiðar og þá er hér ekki verið að ræða um holur í tönnum. Ein hola á Rúntinum á Króknum fellur í þennan flokk hvimleiðra holna, staðsett akkúrat við enda Rúntsins úti í bæ, rétt áður en hringurinn er farinn við Villa Nova.
Sumar holur eru þannig úr garði gerðar að þó þær séu ekki endilega risastórar þá eru þær oft leiðinlega djúpar, nánast hálfgerð svarthol og líkt og svartholin þá virðist allt hvikt dragast að þeim. Í þessu tilviki bílarnir á rúntinum sem fá endurtekin væn högg. -Iss, þetta eru bara klaufar á rúntinum þarna á Króknum,- hugsa kannski einhverjir með sér en enginn veit fyrr en reynt hefur.
Það væri í það minnsta ekkert að því að fylla í þessa holu hið fyrsta.
Önnur hola og talsvert stærri lokaði Aðalgötunni í nær allan dag. Í morgun var allt á floti á milli Mælifells og Hard Wok Café, eitthvað hafði farið í sundur ofan í jörðinni, og því ekki annað að gera en skera upp götuna og gera að sárinu. Umferð var á ný hleypt á þennan mikilvæga götupart nú um kvöldmatarleitið og því ekkert því til fyrirstöðu að fara Rúntinn á Króknum í kvöld – bara að muna eftir að passa sig á holunni!
Þarna sést sárið í Aðalgötunni eftir viðgerðirnar í dag.
Holan er þó þannig staðsett að ökumenn hafa allflestir hægt á bílum sínum áður en þeir lenda í holunni.