Það verður rokkað á Mælifelli í kvöld
Hljómsveitin Dimma var með útgáfutónleika í Hörpunni í gær og á Facebooksíðu sveitarinnar má sjá að stemningin hafi verið góð. Í kvöld ætlar sveitin að mæta á Mælifell á Sauðárkróki og spila lög af nýjustu afurð sinni plötunni Myrkraverk Djáknans. Dimma verður ekki eina sveitin sem stígur á stokk því Sólstafir verða með í för.
Hljómsveitin Dimma spilar hefðbundið þungarokk og hefur platan nýja fengið góðar viðtökur gagnrýnenda.
Sólstafir er einnig þétt metalsveit sem stofnuð var árið 1995. Á þeim tíma sem hún hefur verið starfandi hefur hún gefið út tvær breiðskífur, fjórar smáskífur og þrjá „promo“ diska.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00
Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af lögum sveitanna beggja.
http://www.youtube.com/watch?v=Lfbvrg4xqJs
http://www.youtube.com/watch?v=A6j7mUxGz20