Þæft og þokkafullt!
Fröken Fabjúlöss er alltaf að uppgötva það betur og betur hversu hæfileikaríka einstaklinga hinn fallegi Skagafjörður elur af sér. Nýjasta uppgötvunin er Handverk IR, en það er hin óhugnalega hæfileikaríka Inga Rut Hjartardóttir sem stendur fyrir snilldinni!!!
Handverk IR sérhæfir sig í þæfingu í samkrulli við sjávarleður og afraksturinn eru ótrúlega falleg veski, hlýjar en mjög töff handstúkur, armbönd og svo innrömmuð og ofsalega falleg listaverk! Inga Rut sækir innblásturinn greinilega mikið í dýraríkið og náttúruna og virðast hesturinn og kindin eiga sérstakann stað hjá henni og mikið svakalega sem þetta kemur lekker út!! Fröken Fabjúlöss er búin að reka sig á allavega eitt ef ekki fleiri atriði í öllum kategóríum sem hana langar í, og er búin að sjá heilmargt sem hún hafði ekki hugmynd um að hana sárvantaði fyrr en akkúrat núna! Og það er ekkert ólíklegt að Frk Fab skarti einhverju úr línunni frá Ingu Rut í framtíðinni þar sem þetta er allt saman alveg hræbillegt hjá elskunni!
Þar sem við hérna í heimsborgaragátt Fabjúlössmans erum auðfúsar að kynna hina almennu Skagfirsku snilligáfu og erum að missa okkur yfir því hversu fabjúlöss það væri að mæta með þæft hestaveski í Laufskálaréttir, þá mælum við eindregið með því að allir kíki inn á síðuna hjá Handverk IR og "læki". Hver veit nema þarna sé fundin jólagjöfin handa útlitsmeðvituðu tískufrænkunni sem vantar ekkert en langar í allt!!!
Facebook síðuna má finna hérna: http://www.facebook.com/pages/Handverk-IR-%C3%BE%C3%A6f%C3%B0ar-myndir-veski-og-fleira/263104763762302