Þegar maskarinn er þurr á manninn...

Allar konur hafa lent í því að uppáhaldsmaskarinn er allt í einu farinn að vera með óþarfa attitúd, orðinn þurr og hárin á burstanum farin að leggjast saman.. Er það ekki?

Fröken Fabjúlöss er engin undantekning þegar kemur að því, hefur venjulega farið í fýlu, dúndrað dásemdinni í ruslið og farið og fjárfest í nýjum maskara- og þeir eru nú ekkert alltaf í ódýrari kantinum. En nú hefur heldur betur dregið til tíðinda. Í einhverjum netrúntinum datt Fröken Fabjúlöss inn á einhverja tildursíðuna þar sem staðið var á því fastar en fótunum að hægt væri að drýgja maskarann með því að setja nokkra dropa af saltvatnupplausn út í hann þegar þurrkatímabil hefst.

Í gærmorgun var svo maskari Fröken Fabjúlöss farinn að sýna öll merki þess að vera uppurinn og dettur þá þetta húsráð inn í kollinn á henni. Eina saltvatnsupplausnin sem var innan handar voru nefdropar handa ungabörnum (sem er bara saltvatnupplausn í dropateljaratúpum) og smellti hún 4-5 dropum í maskarann, hugsandi það að hún hefði engu að tapa! Árangurinn var ekki lengi að láta á sér standa! Eftir að hafa þjösnað burstanum fram og aftur í maskarann nokkrum sinnum var hann orðinn eins og nýkeyptur og hefur nú fengið endurnýjun lífdaga!

Fröken Fabjúlöss mælir semsagt eindregið með því að drýgja maskarann með saltvatni og græða þarmeð helmingi lengri endingartíma!

(Mynd birt með góðfúslegu leyfi Make Up Store Iceland)

Fleiri fréttir