Þeir hefðu sennilega frekar viljað spila við Grindavík
Tindastóll og Þór Þorlákshöfn mættust í skemmtilegum körfuboltaleik í Síkinu í kvöld. Grindavíkurbanar Benna Guðmunds mættu fjallbrattir til leik,s eftir að hafa á dögunum lagt meistarana úr Grindavík öðru sinni í vetur, höfðu þó ekki erindi sem erfiði gegn Stólunum sem hafa þrívegis lagt spræka Þórsara í parket í vetur. Þeim finnst því sennilega skemmtilegra að mæta meisturunum en Tindastólsmönnum. Úrslitin í kvöld voru 97-80 fyrir Tindastól en leikurinn var jafn og spennandi framan af en í fjórða leikhluta tóku Stólarnir völdin.
Leikurinn fór vel af stað og kanarnir í báðum liðum sjóðbullandi heitir. Stólarnir náðu forystunni í byrjun en gestirnir voru aldrei langt undan. Miller kom heimamönnum í 13-8 en Darrin Govens svaraði að bragði. Eftir 5 mínútna leik var staðan 15-14 en þá kom skínandi kafli hjá Tindastólsmönnum sem náðu 11 stiga forskoti, 28-17 en Þórsarar minnkuðu muninn fyrir lok fyrsta leikhluta, staðan 30-22 en fengu hins vegar dæmt á sig tæknivíti og annar leikhluti hófst á því að Miller fór á vítalínuna. Nú voru gestirnir hins vegar ákveðnari og Stólarnir misstu dampinn, sóknarleikurinn varð ómarkviss. Þegar 3 mínútur voru til leikhlés jafnaði Baldur Þór Ragnarsson leikinn með 3ja stiga skoti, 43-43. Nú tóku Stólarnir sig á og þegar flautað var til hálfleiks voru Stólarnir stigi yfir, staðan 48-47. Það var áhyggjuefni fyrir heimamenn að Miller fékk tvívegis dæmdan á sig ruðning á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og var þá kominn með 3 villur alls.
Þór komst yfir í byrjun seinni hálfleiks, 48-52 en Miller dreif Stólana áfram og heimamenn náðu aftur yfirhöndinni, 60-56, eftir að Helgi Rafn og Miller settu niður þrista með skömmu millibili. Þá kom góður kafli hjá gestunum sem komust í 62-65 og stuttu síðar var enn dæmd sóknarvilla á Miller og hann kominn með 4 villur. Nú fór um stuðningsmenn Tindastóls á pöllunum. Miller var skipt útaf en nú stigu menn bara upp og Curtis Allen tók við hlutverki Millers. Stólarnir þéttu vörnina og voru grimmir í fráköstunum og gestirnir fóru að taka erfiðari skot. Hreinsi og Igor Tratnik létu til sín taka í sókninni og staðan 70-67 að loknum þriðja leikhluta.
Tratnik og Allen gerðu mikilvægar körfur í upphafi fjórða leikhluta og Tindastólsmenn komnir með yfirhöndina þó munurinn væri ekki mikill. Þegar 2:20 voru liðnar minnkuðu Þórsarar muninn í 77-76 en þá skelltu Stólarnir í lás og gestirnir skoruðu ekki í rúmar 5 mínútur á meðan að heimamenn settu niður 13 stig og tryggðu sér í raun sigurinn. Þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka var Matthew James Hairston sendur í bað og Igor Tratnik fylgdi í kjölfarið eftir stimpingar þegar leikurinn hafði verið stöðvaður vegna leikhlés. Eftir þetta datt botninn úr leik gestanna og Bárður sigldi heim öruggum sigri með strákana spræka og baráttuglaða á dekkinu. Lokatölur 97-80.
Tindastólsliðið spilaði vel í kvöld þó ekki væru kannski allir að finna sig framan af leik. Allen og Miller voru góðir, gerðu báðir 25 stig, og Tratnik skilaði sínu vel, gerði 11 stig og hirti 10 fráköst. Þröstur Leó kom sterkur inn í síðari hálfleik og tók nokkur stór fráköst. Aðrir leikmenn skiluðu sínu með sóma og mikilvægur sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni skilaði tveimur stigum til viðbótar á stigatöfluna. Hjá gestunum voru Govens og Janev öflugir og þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
Stólarnir halda sjöunda sætinu, þegar tvær umferðir eru eftir, með 20 stig. Næst mæta þeir liði Snæfells á sunnudaginn á Snæfellsnesinu en Snæfell er í sjötta sæti með 22 stig og það væri ekki leiðinlegt að ná sigri þar. Í áttunda sæti er lið Njarðvíkur með 18 stig og þeir koma í heimsókn í Síkið í síðustu umferðinni og það gæti orðið háspennuleikur. ÍR og Fjölnir hafa ekki gefið upp von um að stela sæti í úrslitakeppninni en með sigrinum í kvöld hafa Tindastólsmenn styrkt stöðu sína.
Stig Tindastóls: Miller 25 stig/7 fráköst, Allen 25/9, Tratnik 11/10, Hreinsi 9, Helgi Margeirs 8, Rikki 7, Þröstur 6 og Helgi Rafn 6/8.