Þjóðhátíðardagskrá á Sauðárkróki
Það stefnir í heilmikið fjör á Sauðárkróki á Þjóðhátíðardaginn en búið er að setja saman fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Auk hinnar hefðbundnu skrúðgöngu verða m.a. börnum boðið á hestbak, skátatívolí og útitónleikar á Flæðunum, þar sem skagfirskt tónlistarfólk framtíðarinnar tekur lagið.
Dagskrá hátíðarhalda á Sauðárkróki 17. júní:
Kl. 10:30 Þjóðhátíðarsundmót – Héraðsmót UMSS fer fram í sundlaug Sauðárkróks.
Skráning á sund@tindastoll.is. Eftir að mótinu lýkur verður laugin opin almenningi til kl. 17.
Kl. 12:30 Andlitsmálun við Skagfirðingabúð
Félagar úr Skátafélaginu Eilífsbúum selja gasblöðrur á vægu verði.
Kl .13:40 Skrúðganga frá Skagfirðingabúð að Flæðum
(Flæðar eru svæðið norðan við sundlaugina á Sauðárkróki!)
Kl. 14:00 Hátíðardagskrá á Flæðum
Hátíðarræðu flytur Ágúst Ólason skólastjóri Varmahlíðarskóla.
Fjallkonan flytur ljóð.
Leikskólabörn frá Ársölum syngja nokkur lög.
Kl. 14:30 Útitónleikar á Flæðum:Tónlistarfólk framtíðarinnar í Skagafirði.
Fram koma: Contalgen „light“, Funk that shit!, Ingunn Kristjáns og Reynir, Rock to the moon og Sóla, Sunna og Daníel.
Kl. 14:30 Samverustund á Flæðunum
Börnum boðið á hestbak
Barnagarður / leiktæki fyrir yngstu börnin
Skátatívolí. Þar verða skátarnir jafnframt með sölutjald þar sem hægt verður að fá gasblöðrur, kandíflos, heitt kakó, kaffi, vöfflur og fleira góðgæti.
Í tilefni dagsins bjóða nokkrir veitingastaðir upp á kaffihlaðborð á eftirfarandi stöðum:
Þjóðhátíðarkaffi að hætti Áskaffis kl. 15-17
Kaffihlaðborð í tilefni af Þjóðhátíðardeginum á Hótel Varmahlíð kl. 15-17
Þjóðhátíðarkaffihlaðborð á Kaffi Krók kl. 14-17
Heitt súkkulaði og rjómatertu í Lónkoti kl. 14-16:30
Kaffihlaðborð í Ljósheimum frá kl. 15-18