Þjóðin hafnar ESB – Jón Bjarnason
Í hverri skoðanakönnunni á fætur annarri nú síðustu daga kemur fram að mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Í Fréttablaðskönnun 26. jan sl. var 60% þeirra sem svöruðu andvíg umsókn að ESB .
Andstaðan er hörðust á landsbyggðinni þar sem tæp 70% er andvíg umsókn en liðlega 53% á höfuðborgarsvæðinu skipa sér einnig í þann hóp. Yfirgnæfandi meirihluti eða liðlega 71% stuðningsfólks Vinstri grænna vill ekki sækja um aðild. Sá eindregni vilji stuðningsfólks VG er í fullu samræmi við stefnu hreyfingarinnar í ESB- málum.
Þrátt fyrir mjög harðan opinberan áróður ESB sinna á undanförnum vikum, stefnubreytingu Framsóknarflokksins sem nú vill aðildarviðræður, sýnir þessi skoðanakönnun að þjóðin telur nú önnur brýnni mál að fást við en ESB- dekur og aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem Framsókn og Samfylking hafa sett á oddinn í næstu kosningum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.