Þjóðleikur 2013 á Norðurlandi
Um 120 ungmenni taka þátt í Leiklistarhátíð Þjóðleiks á Norðurlandi sem haldin verður í Rósenborg á Akureyri helgina 13.-14. apríl. Upphafið er markað af skrúðgöngu frá Rósenborg niður í göngugötu laugardaginn 13. apríl kl. 12.00. Leiksýningar verða síðan á klukkutíma fresti, á laugardag frá klukkan 13 - 18 og sunnudag klukkan 10 – 16.
Í Rósenborg munu Norðlendingar og gestir þeirra eiga von á sannkölluðu veisluhlaðborði sviðslista. Uppsetningar sex leikhópa eru á tveimur glænýjum íslenskum leikverkum eftir íslensk leikskáld. Þau eru: Manstu (höf. Salka Guðmundsdóttir)og Tjaldið (höf. Hallgrímur Helgason).
Hátíðin er búin að eiga sér langan aðdraganda þar sem flestir hópar hafa æft og frumsýnt í sinni heimabyggð en koma nú saman undir einum leiklistarhátíðarhatti og sýna alls 12 leiksýningar á tveimur dögum. Áhugafólk um leiklist er hvatt til að heimsækja Rósenborg og sjá ungt og upprennandi leikhúsfólk sýna það sem í þeim býr.
Þjóðleikur á Norðurlandi er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og fjölda aðila á Norðurlandi. Verkefnið fékk í ár styrki frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, Barnamenningarsjóði og Menningarráðum Norðurlands vestra og eystra.
Nánari upplýsingar veitir Svava Björk Ólafsdóttir í síma 695 3918 og netfanginu svavaola@gmail.com.
/Fréttatilkynning