Þoka sumstaðar á Norðurlandi vestra

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er austan og síðar norðaustan 5-13 m/s, en hægari í innsveitum fram eftir degi. Dálítil snjókoma. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður norðan 3-10 á morgun og lítilsháttar él. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru hálkublettir á Þverárfjalli, Vatnsskarði og hálka Siglufjarðarvegi og Öxnadalsheiði. Sumstaðar er þoka á Norðurlandi vestra.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Norðaustan 5-13 m/s, hvassast SA- og A-lands. Dálítil él á N- og A-landi, en bjartviðri syðra. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Á laugardag og sunnudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt, en norðan 5-10 austast. Stöku él með N- og A-ströndinni, en léttskýjað S- og V-til. Sum staðar frostlaust með S- og V-ströndinni yfir daginn, annars frost 0 til 10 stig, mest í innsveitum. Harðara frost að næturlagi.

Á mánudag:
Norðan 5-10 m/s og sums staðar dálítil él NA-til, en léttskýjað sunnan heiða. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir norðanátt með éljum fyrir norðan og austan, en skýjað með köflum á S- og V-landi. Kalt í veðri.

Fleiri fréttir