Þórarinn Eymundsson í viðtali við Hestafréttir

Hestafréttir birti nýlega viðtal við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla. Viðtalið er hluti af í röð slíkra sem ganga fyrst og fremst út á að kalla eftir skoðunum kynbótaknapa á breytingunum á yfirlitssýningu Landsmóts. 

„Að mínu mati eigum við að stefna á að rækta keppnishesta. Hestar sem geta náð góðum árangri á beinni brautu en virka síður á hringvelli mega missa sín fyrir mér og þó fyrr hefði verið,“ segir Þórarinn í viðtalinu og bætir við að hestarnir komi þá einnig betur tamdir til sýninga, sem er gott. „Góð reiðmennska og tamning tekur ekki lengri tíma en slæm,“ segir Þórarinn.

Viðtalið í heild sinni má nálgast hér.

 

 

Fleiri fréttir