Þorrablót Skagfirðingafélagsins á föstudagskvöldið
Hið margrómaða þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavik verður haldið föstudagskvöldið 10 febrúar n.k. í Húnabúð. Dýrindis þorramatur verður í boði ásamt skagfirskum skemmtiatriðum sem og veislustjórum.
Samkvæmt fréttum á Fésbókarsíðu Skagfirðingafélagsins höfðu allir miðar selst upp en vegna forfalla þá losnuðu 11 miðar á í gær og verða þeir seldir þeim sem er snöggur til, og er þá hægt að hafa samband við Lúllu 8981766, Huldu 8660114 eða Valgerði 8668984.
Dansleikur verður að borðhaldi loknu þar sem hljómsveitirnar Sleðabandið og Stuðningur við aldraða sjá um fjörið.