Þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavík

Hið árlega þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið laugardagskvöldið 9. febrúar nk. í Þróttaraheimilinu í Reykjavík. Dýrindis þorramatur frá Nóatúni verður á boðstólnum, ásamt fjölda skagfirskra skemmtiatriða þar sem m.a Ellert Jóhanns og Kristján Gísla flytja nokkur lög.

Þá ætlar Kristján Runólfsson hagyrðingur að mæta á svæðið en veislustjóri verður hinn eldhressi Gústi Kára. Hljómsveitin Hrútspungar og svið, þar sem Addi í Útvík er í fararbroddi, leikur fyrir dansi.

Húsið opnar kl. 19.00, miðaverð kr. 4.900.- og miðasalan hefst mánudaginn 28. janúar en lýkur þriðjudaginn 5. febrúar.

Frá þorrablóti Skagfirðingafélagsins Skagfirðingafélagsins í Reykjavík.

Samkvæmt tilkynningu frá Skagfirðingafélaginu er hægt að leggja inn á reikning Skagfirðingafélagsins nr. 0140-26-1752, kt. 580269-5759.

Senda þarf staðfestingu á millifærslu á skagfirdingafelag@gmail.com.

Einnig er hægt að kaupa miða í gegnum síma eftir kl. 18.00 þessa daga, hjá Huldu sími 866-8984 og Valgerði í síma 822-6492 .

Fólk er hvatt til að vera í fyrra fallinu með miðakaup þar sem uppselt var á þorrablóðið á síðasta ári.

Fleiri fréttir