Þrettándaskemmtun Heimis í kvöld
Árlegir þrettándatónleikar Karlakórsins Heimis í Skagafirði fer fram í kvöld og hefjast kl. 20:30. Fyrri hluti tónleikanna verður með hefðbundnu sniði, þar sem sígild karlakóratónlist verður höfð í hávegum. Einsöng í þremur lögum syngur Óskar Péturssonen undirleik annast Thomas Higgerson.
Samkvæmt heimasíðu kórsins mun ræðumaður kvöldsins, Einar K. Guðfinnsson, stíga á stokk að loknu stuttu hléi, en hann er mikill og góður vinur Heimismanna. „Ekki skemmir fyrir honum að vera náfrændi Bjarna Har. og að hafa verið í sveit hjá Dúdda heitnum á Skörðugili í mörg ár, sem reyndar var frændi hans líka,“ segir á vefsíðunni.
Eftir ræðuhöldin mun kórinn fá Guðrúnu Gunnarsdóttur söngkonu til liðs við sig en hún er ein af vinsælustu dægurlagasöngkonum landsins. Hljóðfæraleikarar í seinni hluta tónleikanna eru allir úr röðum kórmanna. Stefán Gíslason mun leika á flygilinn, Rúnar Pétursson á trommur, Guðmundur Ragnarsson á gítar og Steinar Gunnarsson á bassa. „Til þess að kóróna allt saman mun enginn annar en Jón Hallur Ingólfsson leika á hljóðfæri sem sumir kalla eggjastokka, en aðrir vilja frekar tala um hristur. Í lokin ætlar svo Hilmar Sverrisson leika fyrir dansi ásamt hljómsveit og þeim Guðrúnu og Óskari“.
Kórinn stefnir á að fara með samskonar dagskrá á Akranes og til Reykjavíkur í mars, og austur á land í apríl. Einnig er stefnt að því að flytja dagskrána í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í febrúar.
Hér fyrir neðan má sjá myndband frá æfingu kórsins sem Stefán Friðrik útbjó fyrir Feyki-TV
http://www.youtube.com/watch?v=Ol7C0UVoNEM