Þrift seld á 25 milljónir
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í gær að Háskólinn á Hólum hafi í vikunni gengið frá sölu á gæðingshryssunni Þrift frá Hólum sem er ein hæst dæmda hryssa landsins með 8,62 í aðaleinkunn kynbótadóms. Kaupverðið er talið vera rúmar 25 milljónir króna og rennur söluandvirði hryssunnar inn í rekstur Hólaskóla - Háskólans á Hólum.
Kaupandi samkvæmt Worldfeng ku vera Höfðaströnd ehf. sem er í eigu Steinunnar Jónsdóttur og Finns Reyrs Stefánssonar en Mogginn kveðst hafa heimildir fyrir því að kaupendur séu tveir að hryssunni og að Þrift verði áfram í Skagafirði og hafi verið seld með fyli við Arði frá´Brautarholti.
Þrift er átta vetra gömul og gríðarlega vel ættuð.