Þrír Englendingar í Tindastól

Tindastóll hefur gengið frá félagaskiptum við þrjá enska leikmenn fyrir komandi átök í 1. deildinni í sumar í fótboltanum.

Samkvæmt heimasíðu Tindastóls heita þeir Dominic Furness, miðjumaður sem getur einnig leyst varnarstöður í liðinu, Ben Everson sóknarsinnaður leikmaður sem á að geta leyst þær stöður í sumar og nú nýlega var gengið frá félagaskiptum við markmanninn Sebastian Furness sem spilað hefur í Bandaríkjunum undanfarin ár. Dominic og Sebastian eru bræður Theo Furness sem spilaði með Tindastól/Hvöt síðasta sumar. Allir eru þeir frá Middlesbrough á Englandi.

Fleiri fréttir