Þrír erlendir leikmenn komnir á Krókinn
Theo Furness, Ben Everson og Max Touloute eru gengnir til liðs við knattspyrnulið Tindastóls en samkvæmt heimasíðu liðsins eru strákarnir komnir á Krókinn og byrjaðir að æfa á fullu fyrir fyrsta leik sumarsins, sem verður á Ásvöllum þann 12. maí.
Um leikmennina segir á vefsíðu Tindastóls:
Theo Furness er fæddur 1991 og kemur frá Englandi. Hann spilaði með okkur á síðasta tímabili og stóð sig það vel, að vilji var til þess að fá hann aftur. Theo getur leyst margar stöður á vellinum þar á meðal hægri kant og hægri bakvörð. Theo spilað með Middlesbrough frá 10 ára aldri til 18 ára. Eftir það lék hann hálft ár í Bandaríkjunum þar sem liðið hans komst í 16 liða úrslit í háskólaboltanum. Eftir það spilaði hann eitt tímabil með Belgíska liðinu RRFC í 5.deildina þar í landi. Eftir það kom hann til Íslands og spilaði með Tindastól/Hvöt á síðasta tímabili.
Ben Everson kemur frá Middlesbrough og er fæddur árið 1987. Hann hefur búið i Bandaríkjunum síðan 2007 og spilaði í fjögur ár með Háskólaliðinu West Texas A&M. Á síðasta tímabili hefur hann verið að taka Masters-gráðu í skólanum og var hann samhliða því að þjálfa háskólaliðið. Síðastliðin þrjú tímabil hefur hann spilað í „Professional Development League“ þar sem hann hefur spilað með Bradenton Academics, El Paso Patriots og West Texas United.
Max Touloute er fæddur í Les Cayes á Haiti árið 1990. Hefur stundað nám í Indiana University-Purdue University. Spilaði í NCAA Div1 á síðasta tímabili og skoraði þar 13 mörk (14 sæti í deildinni) og gaf 9 stoðsendingar (12. sæti í deildinni). Hann var kosinn íþróttamaður skólans fyrir síðasta ár, en hann kemur til Tindastóls frá Wichita Wings í MLS innanhúsdeildinni.