Þrjár í úrtakshóp U16 kvenna

Í úrtakshópi sem Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari hefur valið til æfinga hjá U16 kvenna nú um helgina eru þrjár stúlkur úr Tindastóli.  Æfingarnar sem fara fram í Egilshöll og Kórnum  áttu upphaflega að vera um nýliðna helgi en var frestað vegna vináttulandsleikja hjá U17 kvenna við Danmörku.

Stúlkurnar heita Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir, Guðný Vaka Björnsdóttir og Hugrún Pálsdóttir.

Þær eru meðal þrjátíu annarra stúlkna sem valdar voru og er hægt að sjá hópinn HÉR

Fleiri fréttir