Þrjár stúlkur verðlaunaðar fyrir hljóðfæraleik
Tónlistarskóli Skagafjarðar lauk vetrarstarfi sínu föstudaginn 18. maí sl. með lokatónleikum í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki. Einnig voru veitt verðlaun úr minningarsjóðum Jóns Björnssonar og Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttir frá Syðra-Vallholti.
Sveinn Sigurbjörnsson skólastjóri segir að margir efnilegir nemendur hafi spilað við skólaslitin sem sýnir hversu fjölbreytt og metnaðarfullt starf fer fram í skólanum. Í Sæluvikunni voru haldnir níu tónleikar og komu fram 260 nemendur ýmist sem sólóistar eða í samleik. Alls stunduðu 271 nemandi nám við skólann í vetur.
Verðlaunahafar voru þær Stella Dröfn Bjarnadóttir sem fékk verðlaun úr minningarsjóði Jóns Björnssonar frá Hafsteinsstöðum og sveitungarnir Jórunn Rögnvaldsdóttir og Jóndís Inga Hinriksdóttir úr minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttir frá Syðra-Vallholti.
Í haust er ætlunin að halda tónleika til styrktar Minningarsjóði Jóns Björnssonar.
.