Tignarlegur fálki

Þessi tignarlegi Fálki var að spóka sig í veðurblíðunni í gær skammt frá Hjaltastöðum í Blönduhlíð, Skagafirði og lét ekki á sig fá þótt blaðamaður Feykis myndaði hann bak og fyrir.

Sést hafði til Fálkans í vikunni áður og því ekki ólíklegt að hann hafi gert sig heimakominn á þessum slóðum, enda örugglega nóg af girnilegum músum á stangli úti á ökrunum í Blönduhlíðinni.

Fleiri fréttir