Tiltektardagur Léttfeta

Hestamannafélagið Léttfeti hóar nú saman mannskap til þess að taka þátt í árlegum tiltektardegi þeirra. Að þessu sinni fer hann fram fimmtudaginn 17. maí nk., sem er Uppstigningardagur.

Tekið verður til í kringum hesthúsin, í hverfinu og næsta umhverfi og einnig farið yfir girðingar í beitarhólfum.

Félagar eru því vinsamlegast beðnir um að mæta kl. 13:00 fyrir framan hesthúsið Steinunnar Önnu þar sem skipt verður  með okkur verkum,“ segir á heimasíðu Léttfeta.

Fleiri fréttir